Þjónustumiðstöð, húsnæði Hringhellu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1609
17. mars, 2009
Annað
Fyrirspurn
3. liður úr fundargerð BÆJH frá 16. mars sl. Tekið fyrir að nýju. Lagt fram kauptilboð dags. 5.3.2009 sem undirritað var með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð í Hringhellu 9 í samræmi við fyrirliggjandi gögn."
Svar

Lúðvík Geirsson tók til máls. Síðan Skarphéðinn Orri Björnsson. Lúðvík Geirsson kom að andsvari. Bæjarstjórn samþykkti tillögu bæjarráðs með 10 atkvæðum, einn sat hjá.