Nýsir hf, einkaframkvæmdasamningar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1615
9. júní, 2009
Annað
Fyrirspurn
6. liður úr fundargerð BÆJH frá 28. maí sl. Fjármálastjóri og skrifstofustjóri skipulags- og byggingasviðs mættu til fundarins og gerðu grein fyrir yfirtöku á rekstrarsamningum vegna Lækjarskóla, Álfasteini og Bjarkarhúsi og uppkaup á búnaði. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu tl afgreiðslu í bæjarstjórn. Afgreiðslu frestað á fundi bæjarstjórnar þ. 2. júní sl. Tekið fyrir á ný.
Svar

Lúðvík Geirsson tók til máls. Lagði hann til að málinu verði vísað til bæjarráðs til frekari kynningar á gögnum sem rétt voru að berast. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða með 11 atkv.