Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1611
14. apríl, 2009
Annað
Fyrirspurn
5. liður úr fundargerð SBH frá 7.apríl sl. Tekin fyrir að nýju tillaga Péturs Jónssonar landslagsarkitekts dags. 15.02.2009 að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis Hauka að Ásvöllum ásamt skýringaruppdrætti. Borist hefur nýr uppdráttur dags. 02.04.2009. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að deiliskipulagi Ásvalla, Haukasvæði dags. 02.04.2009 í auglýsingu skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Þá Haraldur Þór Ólason. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari. Gunnar Svavarsson tók til máls. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson svaraði andsvari.   Bæjarstjórn samþykkti tillögu SBH með 11 samhljóða atkvæðum.