Skógarás A,/2 landfylling neðan húss
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1611
14. apríl, 2009
Annað
Fyrirspurn
29. liður úr fundargerð SBH frá 7. apríl sl. Borist hefur tölvupóstur frá nágrönnum Skógaráss A, þar sem fram kemur að eigandi Skógaráss A hafi rutt öllu efni sem komið hefur til vegna framkvæmda við húsbygginguna niður fyrir húsið og kalli það að taka land í fóstur. Ekki liggur fyrir leyfi fyrir þessari framkvæmd. Skipulags- og byggingarráð hefur synjað beiðni eiganda Skógaráss A um land í fóstur. Eiganda Skógaráss A voru á fundi skipulags- og byggingarráðs 23.09.2008 gefnir 14 dagar til að fjarlægja umrædda landfyllingu. Á fundi 10.09.2008 samþykkti skipulags- og byggingarfulltrúi að gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs að dagssektum verði beitt í samræmi við gr. 210.1 í byggingarreglugerð til að knýja fram úrbætur. Skipulags- og byggingarráð ítrekaði 21.10.2008 samþykkt frá 23.09.2008 um að fjarlægja landfyllingu að viðlögðum dagssektum ef landfylling hefur ekki verið fjarlægð innan 14 daga. Sviðsstjóri og skrifstofustjóri gerðu áður grein fyrir viðræðum við eiganda Skógaráss A 29.10.2008. Skipulags- og byggingarráð ítrekaði 04.11.2008 fyrri afgreiðslu varðandi það að fjarlægja jarðvegsfyllinguna að viðlögðum dagssektum, og gaf eiganda Skógaráss A 14 daga til að fjarlægja fyllinguna. Skipulags- og byggingarráð ítrekaði 10.03.2009 enn fyrri afgreiðslu varðandi það að fjarlægja jarðvegsfyllinguna að viðlögðum dagssektum, og gefur eiganda Skógaráss A/2 14 daga til að fjarlægja fyllinguna. Hafi úrbætur ekki verið framkvæmdar fyrir þann tíma mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum eða fyllingin verði fjarlægð á kostnað eiganda Skógaráss A/2 í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Þar sem eigandi Skógaráss A/2 hefur ekki brugðist við ítrekuðum tilmælum um að fjarlægja jarðvegsfyllingu sem sett var án leyfis neðan húss hans, samþykkir bæjarstjórn að settar verði á hann dagsektir að upphæð 10 þúsund kr./dag frá og með 01.05.2009 hafi hann ekki brugðist við erindinu fyrir þann tíma."
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Þá Almar Grímsson. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari. Haraldur Þór Ólason tók til máls. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari. Gunnar Svavarsson tók til máls. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari. Gunnar Svavarsson svarar andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls.   Bæjarstjórn samþykkti tillögu SBH með 11 samhljóða atkvæðum.