Bæjarhraun 2, ólögleg búseta.
Bæjarhraun 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1629
27. janúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
18.liður úr fundargerð SBH frá 19.janúar sl. Tekið fyrir að nýju erindi Guðna Gíslasonar, Hönnunarhúsinu ehf, f.h. Húsfélagsins Bæjarhrauni 2, varðandi ólöglega búsetu í húsinu og breytingar í rýmum 02-03. Gerð var krafa um stöðvun framkvæmda við vask, salerni o.fl. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 19.08.2009 eigendum rýmanna skylt að tæma búsetu í húsinu innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarráð gerði 20.10.2009 eigendum rýmanna skylt að tæma búsetu í húsinu innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við því.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á húseiganda kr. 50.000 á dag frá og með 1. mars 2010 verði búsetu ekki lokið og ólögmætar framkvæmdir fjarlægðar fyrir þann tíma."
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120239 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030026