Miðvangur 41 íbúð 205, breytingar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 239
1. desember, 2009
Annað
Fyrirspurn
Borist hafa athugasemdir frá stjórn húsfélagsins Miðvangi 41 dags. 22.04.2008 þar sem segir að ólöglegar framkvæmdir séu í gangi í íbúð 205. Við vettvangsskoðun hefur komið í ljós að verið er að framkvæma breytingar án tilskilins leyfis. Íbúðareiganda var 14.05.2008 gert að stöðva framkvæmdir þá þegar í samræmi við 56 gr. skipulags- og byggingarlaga. Samkvæmt upplýsingum er búið að opna milli stofu og svala og verið að endurgera íbúðina. Skipulags- og byggingarfulltrúi óskaði 06.05.2009 eftir teikningum sem sýna umræddar framkvæmdir, einkum hvort breytt hafi verið burðarvirki hússins. Ekkert svar barst. Skipulags- og byggingarráð gerði íbúðareiganda 11.08.2009 skylt að skila inn teikningum af breytingunum innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarráð leggja til við bæjarstjórn að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á íbúðareiganda kr. 30.000 krónur á dag frá og með 1. janúar 2009, verði ekki brugðist við erindinu fyrir þann tíma."