Arnahraun 21 íbúð 0101, ólögleg búseta
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 239
1. desember, 2009
Annað
‹ 21
22
Fyrirspurn
Borist hefur vitneskja um búsetu í ólöglegri íbúð í geymslu í sameign Arnarhrauns 21, sem auk þess uppfyllir ekki ákvæði byggingarreglugerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 07.10.2009 eiganda geymslunnar skylt að ljúka búsetu þar innan fjögurra vikna og fjarlægja allar breytingar sem eru án byggingarleyfis. Yrði ekki brugðist við þessu innan þess tíma mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til Skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 18.11.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda geymslunnar skylt að ljúka búsetu þar innan fjögurra vikna og fjarlægja allar breytingar sem eru án byggingarleyfis. Verði ekki brugðist við þessu innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð vísa erindinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda geymslunnar skylt að ljúka búsetu þar innan fjögurra vikna og fjarlægja allar breytingar sem eru án byggingarleyfis. Verði ekki brugðist við þessu innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð vísa erindinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.