Austurgata 25, byggingarleyfi
Austurgata 25
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 254
3. ágúst, 2010
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá Lúðvík Kristinssyni dags. 01.07.2010 með fyrirspurn um hvort gera megi glugga á suðausturhlið hússins í samræmi við byggingarleyfi frá 18.04.2007, sem fallið var úr gildi þar sem framkvæmdir voru ekki hafnar. Enn fremur er óskað eftir endurgreiðslu gatnagerðargjalda fyrir viðbyggingu sem samþykkt var, en fellur jafnframt úr gildi. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 07.07.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurn varðandi glugga á suðausturhlið hússins. 

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120022 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029125