Framtíðarhafnarsvæði.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1612
5. maí, 2009
Annað
Fyrirspurn
13. liður úr fundargerð SBH frá 28. apríl sl. Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að hefja vinnu við undirbúning að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar svæði vestan Straumsvíkur þar sem skipulagi var frestað. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hafin verði vinnu við undirbúning að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar svæði vestan Straumsvíkur þar sem skipulagi var frestað.” Trausti Baldursson gerir grein fyrir atkvæði sínu: Ég samþykki framangreinda samþykkt um að hafin verði vinna við að ljúka skipulagi fyrir framangreint svæði en með þeim fyrirvara að það sé skipulagsvinnan sem eigi að leiða í ljós til hvers svæðið verður nýtt.
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Þá Guðfinna Guðmundsdóttir, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir og Almar Grímsson. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Einnig Gunnar Svavarsson. Lúðvík Geirsson tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari sem ræðumaður svaraði. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom einnig að andsvari sem ræðumaður svaraði. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Haraldur Þór Ólason tók til máls og lagði fram svohljóðandi viðbótartillögu: Að við fyrirliggjandi tillögu bætist "með því markmiði að svæðið verði nýtt sem hafnarsvæði." Haraldur þór Ólason (sign) Þá Gísli Ó. Valdimarsson. Haraldur Þór Ólason veitti andsvar. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir veitti einnig andsvar. Gísli Ó. Valdimarsson svaraði andsvörum. Gunnar Svavarsson tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsóttir kom að andsvari. Einnig Haraldur Þór Ólason. Gunnar Svavarsson kvaddi sér hljóðs undir fundarsköpum og svaraði síðan andsvörum. Haraldur Þór Ólason kvaddi sér hljóðs undir fundarsköpum og þá Gunnar Svavarsson. Haraldur Þór Ólason svaraði síðan andsvari öðru sinni. Bæjarstjórn felldi breytingartillöguna með 7 atkv. gegn 3. Upphaflega tillagan var samþykkt samhljóða með 10 atkv. Haraldur Þór Óason gerði grein fyrir atkvæði sínu. Gunnar Svavarsson gerði grein fyrir atkvæði sínu. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að svohljóðandi bókun: Bæjarfulltrúi Vinstri grænna telur að fresta eigi enn um sinn vinnu við undirbúning að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025, hvað varðar svæði vestan Straumsvíkur þar sem skipulagi var frestað. Ástæðurnar eru bæði skipulagslegar og fjárhagslegar. Mikilvægt er að öll skipulagsvinna, sérstaklega ef skoða á svæðið úr frá mögulegri stórskipahöfn, verði unnið í nánu samráði við aðra sem hafa með uppbyggingu hafnarmannvirkja á Suð-vesturhorni landsins að gera. Að öðrum kosti er mikil hætta á því að blásið sé til enn einnrar keppninnar á milli sveitarfélaga í skipulags- og uppbyggingarmálum sem endað getur með sambærilegu klúðri og nú er á íbúða- og lóðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Hafnarfjarðarbær hefur þurft að skera niður fjárútlát á öllum sviðum og orðið að forgangsraða verkefnum. Að hefja undirbúning að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar vestan Straumsvíkur, sem óvíst er að komi til framkvæmda á næstu árum, getur ekki talist forgangsverkefni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign)