Framkvæmdaleyfisumsókn - Lagning ljósleiðara á Eyrarbakka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 2
29. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Beiðni Ástu Marteinsdóttur, verkefnastjóra, hjá Ljósleiðaranum ehf, kt. 691206-3780, þar sem óskað var eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara á Eyrarbakka. Einnig er óskað eftir leyfi til að nýta svæðið við Merkiseinsvelli 56 fyrir gám/kaffiaðstöðu, auk lagers fyrir sand og lagnaefni. Lýsing á verkefninu og umfangi þess koma fram á meðfylgjandi skurðaplönum/teikningum, unnar af tæknideild Ljósleiðarans. Áætlaður verktími er frá 1. júlí til 1. desember 2022. Farið hefur fram húsaskoðun á Eyrarbakka þar sem fulltrúar Ljósleiðarans hafa rætt við eigendur eigna og þeim boðið að fá ljósleiðarann tengdan til sín. Viðkomandi aðilar samþykkja þá framkvæmdir á sínum lóðum.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn Árborgar að umsókn verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Áður skal þó finna lager og starfsmannaðstöðu nýjan stað.