Deiliskipulag
Eyði-Sandvík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 2
22. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 1. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 15. júní sl. liður 14. Eyði-Sandvík - Deiliskipulag
Brynja Rán Egilsdóttir f.h. landeigenda lagði fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Eyði-Sandvík land 1. Landnr. 203553. Tillaga tekur til rúmlega 9 ha lands og er gert ráð fyrir heimild til byggingar íbúðarhúss og bílskúrs allt að 400m2 og gestahúsi allt að 80 m2, með mænishæð húsa allt að 5,5m. Þá verður heimilt að reisa útihús/skemmu allt að 600m2, með mænishæð allt að 8,0m. Aðkoma að landspildunni er af Votmúlavegi nr.310 og um nýja heimreið austan við Eyði-Sandvík. Tillagan gerði ráð fyrir að heiti deiliskipulagssvæðis verði framvegis Beykiskógar. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við gildandi Aðalskipulag Árborgar 2010-2030 og einnig endurskoðað aðalskipulag Árborgar 2020-2036, sem er á lokavinnslustigi skipulagsferlis.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna og mælist til við bæjarstjórn Árborgar að tillagan yrði samþykkt og auglýst í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Axel Sigurðsson sat hjá við afgreiðslu máls.
Svar

Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Bragi Bjarnason, D-lista taka til máls.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

801 Selfoss
Landnúmer: 166185 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000865