Björkurstekkur 79 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 87
9. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar 12.janúar 2022. Um er að ræða byggingarleyfisumsókn sem er í grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vegna galla á gögnum er erindið tekið aftur á dagskrá. Grenndarkynningarferli var framlengt um tvær vikur og lýkur 9. febrúar 2022.
Svar

Engar athugasemdir bárust á tímabili grenndarkynningar. Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss að að Björkurstekk 79.