Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hásteinsvegur 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 86
26. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar 29.12.2021. Vegna umsóknar Samúels Smári Hreggviðssonar fyrir hönd Kumbaravogs ehf. sem sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 312,6m2 og 1184,4m3. Byggingaráform voru samþykkt 13.10.2021, með fyrirvara um skil á gögnum. Við meðferð máls, láðist að leita eftir afstöðu nálægra hagsmunaaðila til tillögunnar með grenndarkynningu, þar sem ekki liggur fyrir gildandi deiliskipulag á svæðinu. Tillagna hefur verið grenndarkynnt fyrir eigendum fasteignanna Hásteinsvegur 10, 12, 16, 19 og 23. Gefinn var frestur til athugasemda til 26.1.2022. Engar athugasemdir hafa borist.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi vegna byggingu parhúss að Hásteinsvegi 21.

825 Stokkseyri
Landnúmer: 165715 → skrá.is
Hnitnúmer: 10053664