Umsókn um stofnun nýrrar landspildu
Stóra-Sandvík 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 126
30. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 77. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 22. september, liður 1. Stóra-Sandvík 5 - Umsókn um stofnun nýrrar landspildu. Hannes Jóhannsson, þinglýstur eigandi Stóru-Sandvíkur 5, L166212, lagði fram umsókn um stofnun 1,0 ha. spildu úr landinu skv. meðfylgjandi gögnum. Óskað var eftir því að heiti nýrrar spildu yrði Stóra-Sandvík 5A. Skipulags- og byggingarnefnd gerði ekki athugasemd við landskiptin og heitið á spildunni.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að landskiptin verði samþykkt ásamt heitinu á spildunni.

Landnúmer: 166212 → skrá.is
Hnitnúmer: 10054561