Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Smáratún 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 41
1. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga af 80. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 3. nóvember, liður 10. Smáratún 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkti á fundi 22.september 2021 að grenndarkynna byggingaráform. Tillagan hafði verið grenndarkynnt og var gefinn athugasemdafrestur til 20. október 2021. Við grenndarkynningu bárust samtals 12 athugasemdir. Þær snéru m.a. að stærð byggingar, nýtingarhlutfalli lóðar, málsmeðferð sveitarfélagsins, bílastæðafjölda og útliti fyrirhugaðrar endurbyggingar "Sænska hússins" að Smáratúni 1. Á fundi nefndarinnar 20. október var erindinu frestað og skipulagsfulltrúa falið að fara yfir athugasemdir sem fram höfðu komið og taka saman heildstætt yfirlit yfir innkomnar athugasemdir og tillögur að svörum í samræmi við umræður á fundi nefndarinnar. Farið yfir innkomnar athugasemdir og tillögur að viðbrögðum ræddar. Skipulagsnefnd Árborgar taldi að á fyrri stigum máls hafi stjórnsýslulegum þætti verið ábótavant og gögn sem lágu fyrir til kynningar á byggingunni hafi ekki verið nægjanleg að gæðum til að hagsmunaaðilar gætu myndað sér heilstæða skoðun. Skipulagsnefnd taldi að eftir grenndarkynningu nú þrátt fyrir athugasemdir, að "Sænska Húsið" svokallaða myndi sóma sér vel á lóðinni Smáratún 1. Það báru kynningargögn með sér. Lóðin var skilgreind í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2010-2030, sem "blönduð byggð" sem gaf rými til að hreyfa við nýtingahlutfalli á lóð. Það var rétt ábending hjá mörgum sem gerðu athugasemdir, að húsið sneri ekki eins og flest hús við Smáratún, enda kemur húsið til með að standa einnig við Kirkjuveg. Skoðun nefndarinnar var að svipmót hússins væri gott og hæð þess lægri en margra annarra húsa við Smáratún. Nefndin taldi að 7 bílastæði við húsið væri nægilegt og væri það í samræmi við þá stefnu sem uppi hafði verið í nýrri íbúðahverfum. Varðandi ábendingar um mikinn þrýsting og aukna umferð um miðbæ Selfoss, þá taldi nefndin það vera sérstakt verkefni til úrlausnar í stærra samhengi og muni bygging að Smáratúni 1, ekki hafa þar úrslitaáhrif. Nefndin taldi einnig að grenndarkynning hafi verið víðtæk og að þeir aðilar sem mögulega áttu hagsmuni að gæta, hafi fengið tækifæri á því að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Loks taldi nefndin að endurbygging Sænska hússins myndi í engu skerða hagsmuni íbúa Smáratúns eða annarra nágranna. Skipulagsfulltrúa falið að senda þeim sem athugasemdir gerðu bókun skipulagsnefndar. Samþykkt með þremur atkvæðum Sigurjón V. Guðmundsson, Hjalti Tómasson, og Ari Már Ólafsson. Ari Björn Thorarensen og Magnús Gíslason sátu hjá.
Ari Björn Thorarensen og Magnús Gíslason lögðu fram eftirfarandi bókun: Ekki var gætt jafnræðis við úthlutun lóðarinnar Smáratún 1. Auglýsa hefði átt lóðina til að allir sem hefðu áhuga á henni gætu sótt um. Engar skýrslur eða mat lágu fyrir hvort Sænska húsið þyldi flutning á lóðina, þegar ákvörðun um vilyrði var tekin. Aðeins voru uppi getgátur og því má spyrja hvort alvara hafi verið í fyrirhuguðum flutningi hússins eða nota ætti innviði úr húsinu eins og gefið var í skyn í beiðni um vilyrði fyrir lóðinni að Smáratún 1. Einnig hafi í grenndarkynningu til nágranna komið fram 12 athugasemdir íbúa sem vert var að taka tillit til.
Lagt var til við bæjarstjórn að samþykkja svör við athugasemdum og byggingaráform.
Svar

Ari B. Thorarensen, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista, Kjartan Björnsson, D-lista og Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar D-lista sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Ari B. Thorarensen, D-lista leggur fram eftirfarandi bókun, sem einnig var lögð fram á 80. fundi skipulags- og byggingarnefndar:
Ekki var gætt jafnræðis við úthlutun lóðarinnar Smáratún 1. Auglýsa hefði átt lóðina til að allir sem hefðu áhuga á henni gætu sótt um. Engar skýrslur eða mat lágu fyrir hvort Sænska húsið þyldi flutning á lóðina, þegar ákvörðun um vilyrði var tekin. Aðeins voru uppi getgátur og því má spyrja hvort alvara hafi verið í fyrirhuguðum flutningi hússins eða nota ætti innviði úr húsinu eins og gefið var í skyn í beiðni um vilyrði fyrir lóðinni að Smáratún 1. Einnig hafi í grenndarkynningu til nágranna komið fram 12 athugasemdir íbúa sem vert var að taka tillit til.

800 Selfoss
Landnúmer: 162665 → skrá.is
Hnitnúmer: 10061156