Deiliskipulagsbreyting
Þykkvaflöt 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 38
18. ágúst, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 74. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 11. ágúst, liður 9. Deiliskipulagsbreyting - Þykkvaflöt 3-9.
Á 72. fundi skipulags- og byggingarnefndar var skipulagsfulltrúa falið að leita lausna í málinu í samvinnu við skipulagshöfunda.
Þann 15. júlí 2021 funduðu formaður skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúi með lóðarhafa og hönnuðum. Farið var yfir áform deiliskipulags og ásýnd svæðisins. Hönnuður hefur lagt fram frekari gögn áformum sínum til stuðnings.
Að mati nefndarinnar samræmist tillagan ágætlega núverandi byggð við Hulduhól og framtíðaruppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Eyrarbakka. Því lagði skipulags- og byggingarnefnd til við bæjarstórn að tillagan yrði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

820 Eyrarbakki
Landnúmer: 196131 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001026