Stíghústún Stokkseyri - beiðni um að fá landið leigt eða keypt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 33
17. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 63. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 10. mars sl., liður 3. Stíghústún Stokkseyri - beiðni um að fá landið leigt eða keypt.
Á fundi bæjarráðs 25. febrúar sl. var tekin fyrir beiðni um að fá landið Stíghústún á Stokkseyri leigt eða keypt. Bæjarráð óskaði eftir umsögn skipulags- og byggingarnefndar um erindið í ljósi byggingaáforma sem þar var lýst. Sérstaklega yrði tekin afstaða til þess hvort áformin samræmist skipulagi svæðisins og þróun byggðar.
Umrætt svæði er skilgreint sem frístundahúsasvæði í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2010-2030. Ekkert deiliskipulag fyrir frístundabyggð hefur verið unnið á svæðinu. Komi til þess að deiliskipulag verði unnið mun sveitarfélagið auglýsa þær lóðir lausar til úthlutunar.
Því lagði skipulags- og byggingarnefnd til við bæjarstjórn að beiðni um kaup á landi yrði hafnað.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.