Deiliskipulagsbreyting - Miðbær Selfoss
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 119
8. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 72. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 30. júní, liður 13. Deiliskipulagsbreyting - Miðbær Selfoss. Í bréfi dagsettu 23. júní 2021, gerði Skipulagsstofnun athugasemdir við að sveitarfélagið birti auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar í b-deild stjórnartíðinda. Í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tók skipulags- og byggingarnefnd athugasemdir Skipulagsstofnunar til umræðu. Brugðist hafði verið við öllum athugasemdum stofnunarinnar með óverulegri breytingu á greinargerð og uppdrætti deiliskipulagsbreytingarinnar. Yfirlit yfir viðbrögð við athugasemdum Skipulagsstofnunar var sett fram í minnisblaði-210628, dags. 28. júní 2021.
Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun að nýju til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Bæjarráð samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun að nýju til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.