Ósk um deiliskipulag
Vöttur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 119
8. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 72. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 30. júní. liður 8. Ósk um deiliskipulag - Vöttur.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Vött hafði verið auglýst og var athugasemdafrestur til og með 23. júní 2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum en þær umsagnir leiddu ekki til breytinga á tillögunni.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Bæjarráð samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.