Deiliskipulagsbreyting - Víkurheiði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 35
28. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 64. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 24. mars, liður 15. Deiliskipulagsbreyting - Víkurheiði.
Lagður fram nýr uppdráttur þar sem hefur verið tekið tillit til umsagna sem bárust. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Víkurheiði var auglýst frá 1. október 2020, með athugasemdafresti til og með 25. nóvember 2020. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum og hefur verið brugðist við þeim með óverulegri breytingu á auglýstri tillögu.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til staðfestingar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.