Skerðing tekna Jöfnunarsjóðs og mat á áhrifum á einstök sveitarfélög
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 10
20. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Bókun stjórnar sambandsins vegna áforma um skerðingu á tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Svar

Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri tók til máls og lagð fram eftirfarandi tillögu að bókun:

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar mótmælir harðlega þeim áformum fjármálaráðherra og ríkisstjórnar að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um a.m.k. 3,3 milljarða á árunum 2020 og 2021. Skerðingin kemur harðast niður á útgjaldajöfnunarframlögum, en þau renna einkum til sveitarfélaga á landsbyggðinni sem hafa mörg hver veikan fjárhag. Skerðingin kemur einnig niður á framlögum til þjónustu við fatlað fólk og getur falið í sér að dregið verði úr þeirri þjónustu.

Áætlað tekjutap sveitarfélaga á Suðurlandi af framlögum til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts er um 505 millj.kr. og vegna málefna fatlaðra 29 millj.kr. Framlög til málefna fatlaðra hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði og bætir þetta ekki stöðu þess málaflokks.

Árið 2015 voru samþykktar leiðréttingar á framlögum til málefna fatlaðra sem námu um 1,5 milljarði króna. Sú niðurstaða var samkomulag sem byggði á löngu og ítarlegu samráðsferli milli ríkis og sveitarfélaga. Að þurrka nánast út með einu pennastriki þann árangur sem þá náðist er í hróplegu ósamræmi við það samstarf við ríkið sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt mikla vinnu í að styrkja á liðnum áratug.

Einhliða ákvörðun ríkisvaldsins af þessu tagi er í andstöðu við það formlega samráðsferli ríkis og sveitarfélaga sem hefur þróast á undanförnum árum og fela áform þessi í sér algeran trúnaðarbrest gagnvart sveitarfélögunum í landinu. Ekki getur með nokkrum hætti talist eðlilegt að áhersla á að bæta afkomu ríkissjóðs skili sér í skerðingum á tekjum sveitarfélaganna, sem standa undir mjög stórum hluta almannaþjónustu í landinu.

Bæjarstjórn krefst þess að áform um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs verði afturkölluð þegar í stað.

Gunnar Egilsson, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Kjartan Björnsson, D-lista, tóku til máls.

Tillaga að bókun var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.