Tillaga að deiliskipulagi Hjalladælar á Eyrarbakka.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 35
28. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 64. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 24. mars, liður 17. Tillaga að deiliskipulagi Hjalladælar á Eyrarbakka.
Lögð fram ný tillaga af deiliskipulagi Hjalladælar Eyrarbakka.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillaga yrði samþykkt til auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Á-lista og Eggert Valur Guðmundsson, S-lista taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.