Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 94
4. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 20.10.2021, að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 í samræmi við ákvæði Skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstofnun var í kjölfar samþykktar bæjarstjórnar send tillaga til yfirferðar, og gerði stofnunin í bréfi dags. 16.12.2021 nokkrar athugasemdir, sem var brugðist við. Tillagan var auglýst í samræmi við 31.gr. skipulagslaga, í Lögbirtingablaði, Fréttablaðinu , Dagskránni miðvikudaginn 16.3.2022 og var veittur frestur til athugasemda til og með 27.4.2022. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar auk tengingar við vefsvæði ráðgjafafyrirtækisins Eflu. Borist hafa umsagnir frá lögboðnum umsagnaraðilum auk nokkurra frá almennum borgurum.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd telur eðlilegt að umsagnir og athugasemdir verði sendar samráðshópi um endurskoðun aðalskipulags til yfirferðar, auk skipulagsráðgjafa áður en tillagan verður send Skipulagsstofnun til lokameðferðar.