Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 10 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 397
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar: Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir að umhverfis- og skipulagsráð fái hið fyrsta ítarlega kynningu á ástandi stúkumannvirkis Laugardalslaugar og fyrirhuguðum framkvæmdum. Óskað er eftir að fyrir ráðið verði lagðar allar fyrirliggjandi úttektir, rannsóknir og áhættumöt, ásamt upplýsingum um hvaða ákvarðanir hafa verið teknar, af hverjum og á hvaða forsendum. Sérstaklega verði gerð grein fyrir þeim valkostum sem hafa verið skoðaðir varðandi viðgerðir, styrkingu, varðveislu, breytta nýtingu og niðurrif mannvirkisins, þar á meðal nýlegum hugmyndum um sjálfstætt burðarvirki. Jafnframt verði kynntar fyrirliggjandi kostnaðaráætlanir, umhverfisáhrif, framkvæmdatímalína og næstu skref í málinu.
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda- og fasteignaþjónustu.