Samantekt 2025
Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 394
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á kolefnisspori Reykjavíkur 2025, samfélagslegt og frá rekstri.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihlutans fagna því að samkvæmt loftslagsbókhaldi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 hefur losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt BASIC+ uppgjöri dregist saman um 6% frá 2019. Sérstaklega er ánægjulegt að losun vegna samgangna hefur minnkað um 15%. Niðurstöðurnar sýna þó jafnframt að samdráttur í losun hefur gengið hægar en nauðsynlegt er til að ná metnaðarfullum loftslagsmarkmiðum borgarinnar. Þótt þróunin sé í rétta átt er ljóst að gera þarf betur til að ná fram þeim breytingum sem nauðsynlegar eru. Samgöngur eru enn stærsti einstaki losunarflokkurinn og þar liggja mikil tækifæri. Mikilvægt er að nýta tækniframfarir, hraðari orkuskipti, betri umferðarstýringu og skilvirkara samgöngukerfi til að draga áfram úr losun. Jafnframt þarf að huga að loftslagsáhrifum byggingarefna, landnotkunar og meðhöndlunar úrgangs, þar sem bókhaldið sýnir að losun vegna úrgangs hefur aukist þrátt fyrir verulega minnkun urðunar. Meirihlutinn leggur áherslu á að loftslagsaðgerðir borgarinnar byggist á traustum gögnum, skýrum árangursmælikvörðum og mati á kostnaði og ávinningi. Forgangsraða þarf þeim aðgerðum sem skila mestum mælanlegum árangri fyrir íbúa, umhverfi og fjárhag borgarinnar. Jafnframt er mikilvægt að greina áhrif orkuskipta, breyttrar umferðarhegðunar og annarra aðgerða sérstaklega, svo unnt sé að meta raunverulegan árangur stefnu og framkvæmda borgarinnar og bregðast tímanlega við ef framgangur markmiða er ekki nægjanlegur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Loftslagsbókhald Reykjavíkur fyrir árið 2025 sýnir að betur má ef duga skal ef Reykjavíkurborg vill ná markmiðum sínum fyrir árið 2030. Stærsti losunarflokkurinn er eftir sem áður samgöngur sem bera ábyrgð á um 57% af allri losun Reykjavíkur og innan þess flokks eru fólksbifreiðar um 53% af losun vegna samgangna. Þétting byggðar, aukin hlutdeild almenningssamgangna og það að gera fleirum kleift að ganga og hjóla sem mest snýst ekki bara um að búa til góða borg til að búa í heldur er það einnig mikilvægt loftslagsmál. Reykjavík á að vera borg þar sem loftslagsmál og lífsgæði haldast í hendur, þar sem öflugar almenningssamgöngur og góð þjónusta í hverfunum gera fólki kleift að velja grænni ferðamáta og Samfylking hvetur meirihlutann til að hvika hvergi frá markmiðinu um kolefnishlutleysi 2030.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Grænt bókhald, ásamt loftslagsbókhaldi borgarinnar og Grænu skrefunum, er ein undirstaða þess að Reykjavíkurborg nái markmiðum sínum um kolefnishlutleysi. Nú hefur meirihlutinn rekið það fólk sem hefur haldið utan um græna bókhaldið og Grænu skrefin og enginn hefur tekið við verkefnunum. Þá liggja engar upplýsingar fyrir um hvort þeim verkefnum verður yfirhöfuð haldið áfram. Þetta er mikið áhyggjuefni og það er dapurlegt að eina umhverfisáhersla þessa meirihluta sé að planta fimmtíu þúsund trjám. Græna bókhaldið og Grænu skrefin eru ekki einungis umhverfisverkefni heldur líka rekstrarmál og með öflugu utanumhaldi er hægt að ná umtalsverðum fjárhagslegum sparnaði, draga úr umhverfissóun og rekstrarkostnaði starfsstöðva. Niðurlagning þessara sérfræðistarfa bendir til þess að engin rýni eða mat hefur farið fram hjá þessum meirihluta á mikilvægi starfa eða þörf þeirra verkefna sem unnin eru af starfsfólki Reykjavíkurborgar og afhjúpar að innan hans virðist enginn bera umhyggju fyrir umhverfisvernd og að ná niður kolefnisspori Reykjavíkur.