Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 394
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar, sbr. 18. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 23. september 2026. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu dags. 18. október 2026.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Miðflokksins:
Borgarfulltrúi Miðflokksins þakkar fyrir veitt svar, en finnst miður að ekki skuli svarað spurningu um nýtingu brúar fyrir gangandi og hjólandi spölkorn frá þeim gatnamótum sem fjallað er um. Brúin er glæsilegt sérhæft mannvirki fyrir þessa umferðarhópa og hlýtur að hafa átt að gegna veigamiklu hlutverki fyrir þessa samgöngumáta. Það væri æskilegt að hvetja til þess að gangandi og hjólandi nýti sér þessa mikilvægu samgöngubót til aukins öryggis.