Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 388
Annað
‹ 17
18
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins: Miklar umferðartafir hafa orðið á Miklubraut undanfarnar vikur vegna yfirstandandi framkvæmda við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar. Óskað er eftir stuttri greinargerð með almennum upplýsingum um framkvæmdirnar, m.a. um áætlaðan kostnað og fyrirhugaðan verktíma. Einnig um skiptingu verksins milli borgarinnar og Vegagerðar ríkisins, varðandi ábyrgð á verkinu, ákvarðanatöku og kostnað. Þá er óskað eftir skýrum svörum um ástæður fyrir því að ráðist var í umræddar framkvæmdir á þessum tímapunkti. Er t.d. um háa slysatíðni að ræða á áðurnefndum gatnamótum? Er glæsilegt mannvirki fyrir gangandi og hjólandi örskammt frá lítið nýtt? Enn fremur, af hverju ákveðið var að hefja verkið á þeim tíma í ágúst þegar árviss umferðaraukning, og um leið auknar umferðartafir, eiga sér stað við upphaf skólastarfs. Ef breytingar á stórum umferðaræðum eru nauðsynlegar, er æskilegt að ráðist sé í slíkar framkvæmdir á þeim tíma sumars þegar umferð í borginni er í lágmarki. Eðlilegra þá að fresta til næsta árs ef það fellur á tíma.