Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 388
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á deiliskipulagi Klettasvæðis lóðanna nr. 1 og 3 við Héðinsgötu og nr. 2, 3 og 5 við Köllunarklettsveg, sem felst í þróun á nýrri blandaðri byggð á iðnaðarsvæði við Sundahöfn.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagnar þeirri metnaðarfullu framtíðarsýn sem hér er lögð fram fyrir Köllunarklettssvæði. Hér er einstakt tækifæri til að umbreyta iðnaðar- og athafnasvæði í nýja og fjölbreytta byggð þar sem íbúðir, atvinnustarfsemi, þjónusta og samfélagslegir innviðir fara saman. Tillagan gerir ráð fyrir um 600 íbúðum af fjölbreyttum toga, auk hjúkrunarheimilis, leikskóla og fjölbreytts atvinnu- og þjónustuhúsnæðis. Markmiðið er þannig að skapa lifandi byggð þar sem fólk getur búið, starfað og sótt þjónustu. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá áherslu á vönduð almenningsrými, virkar jarðhæðir og góða tengingu við sjóinn. Með samfelldri gönguleið meðfram strandlengjunni og nýjum tengingum við Laugarnes og nærliggjandi hverfi opnast þetta einstaka svæði betur fyrir almenningi. Meirihlutinn leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst og í góðu samstarfi við lóðarhafa að framgangi verkefnisins. Jafnframt þarf að tryggja að uppbyggingin taki mið af nálægð við Sundahöfn og að ný byggð og mikilvæg atvinnu- og hafnarstarfsemi geti þróast vel samhliða.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Tillögur að uppbyggingu á Klettasvæði eru afar spennandi og tekin hafa verið jákvæð skref í þróun verkefnisins. Þær gefa fyrirheit um nýtt hverfi í borginni sem einkennist af lifandi borgarumhverfi, með um 600 íbúðum og fjölbreyttri starfsemi. Áskoranir við uppbyggingu hverfisins eru þó augljósar vegna nálægðar við Sæbraut og hafnarsvæði Sundahafnar. Mikilvægt er að tryggt verði að Klettasvæðið tengist Laugardalnum með góðum og öruggum hætti fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Jafnframt er mikilvægt að horfa til þeirra áhrifa sem Sundabraut getur haft á uppbyggingu hverfisins, sérstaklega ef gangalausnin verður fyrir valinu. Í því tilviki mun vestari gangamunninn opnast á Sæbraut, rétt vestan við gatnamót Sundagarða og Dalbrautar. Við frekari þróun verkefnisins væri einnig spennandi að skoða hlutverk Köllunarklettsvegar og Héðinsgötu og hvort hægt sé að tengja hverfið með betri og virkari hætti vestur yfir að Laugarnestanga.