Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn hefur ákveðið að ráðast í markvissar aðgerðir til að auka nýtingu bílahúsa Reykjavíkurborgar og fagnar þeirri auglýsingaherferð og nýju ásýnd sem hér er kynnt. Í bílahúsum borgarinnar eru samtals 1.145 bílastæði, sem eru fleiri stæði en öll P1-stæði á yfirborði í miðborginni. Þar liggja því mikil tækifæri til betri nýtingar þeirra innviða sem þegar eru til staðar. Markmiðið er að gera bílahúsin sýnilegri og auðveldari í notkun, bæta merkingar og upplýsingagjöf og kynna betur kosti þeirra fyrir íbúum og gestum miðborgarinnar. Bílahúsin eru miðsvæðis, stutt er í verslun, þjónustu, menningu og mannlíf og verður lögð áhersla á að kynna m.a. verð, staðsetningu, öryggi og sólarhringsopnun. Betri nýting bílahúsanna getur jafnframt dregið úr þörf fyrir leit að stæðum á götum miðborgarinnar og stuðlað að markvissari nýtingu borgarlands. Bílahúsið er ekki áfangastaðurinn heldur upphafið að heimsókn gesta í miðborgina.