Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Skipulagsfulltrúi nr. 1082
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2026 var lögð fram fyrirspurn Farfugla ses., dags. 21. júlí 2026, ásamt greinargerð VA arkitekta, dags. 21. júlí 2026, um að endurskipuleggja nýtingu 4. hæðar hússins á lóð nr. 7 við Bankastræti þannig að gestafjöldi verði aukin úr 104 í allt að 135 gesti. Samhliða þeirri breytingu minnkar veitingaaðstaða á hæðinni og hámarksfjöldi gesta í veitingarýminu lækkar, þannig að heildarmannfjöldi innan byggingarinnar verður áfram innan þeirra marka sem tæknilegar forsendur gera ráð fyrir. Einnig var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. ágúst 2026. Fyrirspurn er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi VA Arkitekta, dags. 15. september 2026, þar sem óskað er eftir endurskoðun á afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 25. ágúst 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. október 2026. Jákvætt er tekið í að unnið sé áfram að byggingarleyfisumsókn fyrir breytingu á innri nýtingu 4. hæðar hússins með fjölgun gistirýma úr 104 í 135 og minnkun veitingarstaðar, án breytinga á byggingarmagni. Bent er á að leita þarf umsagnar Minjastofnunar Íslands vegna fyrirhugaðra breytinga. Tryggja þarf að breytingar leiði til þess að veitingaraðstaða verði áfram með viðunandi hætti. Sjá fyrirvara og nánari upplýsingar í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. október 2026.
101 Reykjavík
Landnúmer: 101325 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007581
Síðasta markaðsverð
24.000.000 kr.
Einbýli · 129 m² · 28.01.2021
Kaupskrá 2 eignir
24.000.000 kr. 28.01.2021
Einbýli · 129 m² · 4 herb. · bygg. 1993 · HMS
209.000.000 kr. 23.03.2012
Atvinnuhúsnæði · 1072 m² · bygg. 1930 · HMS