Lögð fram fyrirspurn Eignabyggðar ehf., dags. 6. maí 2026, ásamt greinargerð
Hallgríms Þórs Sigurðssonar
arkitekts, dags. 6. maí 2026, um breytingu á deiliskipulagi Rafstöðvarsvæðis, Toppstöðin, vegna lóðar nr. 4 við Rafstöðvarveg sem felst í uppbyggingu á lóðinni, samkvæmt fyrirspurnartillögu PLAN Studio, dags. í maí 2026. Einnig er lögð fram forgreining á samgöngum við Toppstöðina, dags. 27. apríl 2026, uppdrættir PLAN Studio, grunnmyndir og snið, ódags. og Kynning PLAN Studio á útilífsmiðstöð, dags. í janúar 2025. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. október 2026.
Jákvætt er tekið í tillögu A í fyrirspurn. Tillagan samræmist gildandi deiliskipulagi sem heimilar bæði viðhald og endurbyggingu. Einnig samræmist tillagan aðalskipulagi fyrir OP4 svæði þar sem útfærsla lóðar og starfsemi byggingarinnar styður til útiveru og frístundaiðkunar. Sjá fyrirvara og nánari upplýsingar í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. október 2026.