Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605018, dags. 28. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík dagsett 27. apríl sl. um að kæranda verði gert að færa fasteign sína að Deplahólum 7 til fyrra horfs og til samræmis við fyrirliggjandi og gildandi samþykkta uppdrætti og veittur til þess 60 daga frestur eða sæta annars dagsektum.