Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605018, dags. 28. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík dagsett 27. apríl sl. um að kæranda verði gert að færa fasteign sína að Deplahólum 7 til fyrra horfs og til samræmis við fyrirliggjandi og gildandi samþykkta uppdrætti og veittur til þess 60 daga frestur eða sæta annars dagsektum. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 23. júní 2026.