Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 381
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605002, dags. 4. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar dagsett 31. mars 2026 um að samþykkja leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2026. Jafnframt er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. apríl 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 23. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 31. mars 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti, ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi nr. 46 við Grensásveg.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar árétta að mikilvægt er að finna Kaffistofu Samhjálpar stað því Reykjavík á að vera borg fyrir alla. Kaffistofan sinnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk sem á erfitt með að sjá sér fyrir nauðsynjum dagsins. Þjónustan snýst ekki aðeins um mat heldur um mannlega reisn, öryggi og hafa stað til að leita á þegar allt annað bregst. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að Reykjavík sé borg fyrir alla. Mikilvægt er að félagasamtök á borð við Samhjálp geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu við að styðja fólk sem stendur höllum fæti og veita nauðsynlega þjónustu af virðingu og mannúð. Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Mikilvægt að skoðað sé nánar hvað þetta þýðir varðandi afgreiðslu sambærilegra mála í framtíðinni. Meirihlutinn leggur áherslu á að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað í borginni í sátt og samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila. Markmiðið er að tryggja að þjónustan verði áfram öflug og aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda, um leið og byggt er á traustri málsmeðferð, góðum undirbúningi og virku samtali við nærumhverfið.