Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 380
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605002, dags. 4. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar dagsett 31. mars 2026 um að samþykkja leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I, tegund c, móttökueldhús og matsal fyrir 100 gesti ásamt tilheyrandi snyrtingum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Grensásveg. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2026.