Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjöldi barna á leikskólanum fer úr 150 í 200, byggingarreitur B1 er stækkaður þannig að megi koma fyrir hjóla-, vagna- og útigeymslum innan reitsins en byggingarmagn helst óbreytt. Auk þess er bíla- og hjólastæðum fjölgað, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 22. maí 2026. Einnig er lagt fram Samgöngumat Verkís, ódags.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.