Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar samþykkir breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A sem heimilar leikskóla fyrir allt að 200 börn. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur þó ákveðið að skólinn taki í upphafi við allt að 120 börnum. Ákvörðun um frekari fjölgun mun byggjast á þörf fyrir leikskólapláss og reynslu af starfseminni. Meirihlutinn tekur undir áhyggjur íbúa af umferð á Fossvogsvegi og leggur áherslu á örugga aðkomu barna að skólanum, hvort sem þau koma gangandi, hjólandi eða í bíl. Áður en börnum er fjölgað umfram 120 verður umferð metin á þeim tímum þegar flest börn koma í skólann og fara heim. Jafnframt verður kannað hvernig bílastæði við skólann og í nærliggjandi götum nýtast og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda metið. Við matið verður leitað til íbúa, foreldra og starfsfólks um reynslu þeirra af aðkomunni. Niðurstöðurnar verða kynntar umhverfis- og skipulagsráði og leikskóla- og daggæsluráði. Ráðist verður í þær úrbætur sem matið gefur tilefni til áður en næsti áfangi hefst.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja uppbyggingu nýs leikskóla á Fossvogsbletti en mikilvægt er að taka alvarlega áhyggjur íbúa af aukinni umferð og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Fyrirliggjandi samgöngumat sýnir að gatnakerfið getur tekið við áætlaðri umferð en bendir jafnframt á þörf fyrir sérstakar umferðaröryggisaðgerðir. Mikilvægt er að tryggja að þær verði útfærðar og framkvæmdar áður en leikskólinn tekur til starfa. Jafnframt þarf að skýra hvernig áform um að hefja starfsemi með 120 börnum samræmast skipulagsheimild fyrir allt að 200 börn og tryggja að frekari fjölgun byggist á raunverulegri þörf og mati á áhrifum á nærumhverfið.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokksins:
Kannski er kvörtun íbúa um vöntun á samráði byggð á misskilningi. Samkvæmt þessari kynningu kemur fram að þegar deiliskipulagsbreyting er auglýst gefst íbúum tækifæri til þess að gera athugasemdir. Það er samráðið sem talað er um. Líklega vita ekki allir af því.