Síðast Vísað til borgarráðs á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina að Ægisíðu 104, Leikskólinn Ægisborg. Skipulagssvæðið afmarkast til vestur af Ægisíðu og til suðurs af verslunar- og þjónustulóð þar sem bílaþjónustustöð er starfrækt, til austurs af einbýlishúalóðum við Einimel og til norðurs af raðhúsalóð við Kaplaskjólsveg. Í tillögunni sem lögð er fram felst að heimilt verði að rífa eldri byggingu, að hluta til eða öllu leiti, og að á lóðinni rísi átta deilda leikskóli sem getur tekið á móti allt að 160 börnum í stað fjögurra deilda leikskóla sem nú er, samkvæmt uppdr. Sp(r)int Studio ehf., dags. 24. apríl 2026. Einnig lagt fram Samgöngumat Eflu, dags. 21. apríl 2026.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir leikskólann Ægisborg fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila. Mikilvægt er að bregðast við aukinni eftirspurn eftir leikskólarýmum í hverfinu. Fulltrúinn bendir þó á að leikskólavandinn í Vesturbæ er verulegur og brýnt að tryggja að framboð á leikskólarýmum innan hverfisins verði raunverulega aukið áður en ráðist er í framkvæmdir. Mikilvægt er að uppbygging leysi vandann en flytji hann ekki til. Jafnframt er um verulega stækkun að ræða þar sem byggingarmagn á lóðinni er margfaldað og starfsemin tvöfölduð. Slík uppbygging kallar á raunhæfa og trausta samgöngulausn. Fyrirliggjandi gögn sýna að bílastæðaþörf getur farið umfram fyrirhugaðan fjölda stæða á álagstímum og að hluti eftirspurnar muni færast út í nærliggjandi götur. Nauðsynlegt er að tryggja að aðkoma, umferðaröryggi og áhrif á nærumhverfi séu metin með ítarlegum hætti áður en tillagan verður samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð , þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.