Síðast Vísað til borgarráðs á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 28 við Barónsstíg, Vörðuskóla. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur fyrir nýbyggingu Vörðuborgar verður víkjandi í tillögunni, lóð stækkar, akstur í gegnum Egilsgötu og inn á bílastæði norðan megin við Vörðuskóla verði lokað, bílastæði meðfram Egilsgötu tilheyri skóla og þeirri starfsemi sem þar verður, bílastæði norðan megin á lóð verði almenn bílastæði, setja inn nýja byggingarreiti fyrir sorp/geymslu, kvaðir verða settar á um stæði fyrir sorpbíla/aðföng, bílastæði fyrir hreyfihamlaða og að hæðarsetning lóðar taki mið af aðliggjandi umhverfi, samkvæmt uppdr. Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 27. apríl 2026. Einnig lagt fram samgöngumat Verkís, dags. í febrúar 2026.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að fyrirliggjandi tillaga um breytingu á deiliskipulagi við Vörðuskóla fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila. Um er að ræða mikilvægt mál og rétt að það fari í opið samráðsferli. Nauðsyn er að benda á samgöngu- og öryggisþætti málsins. Fyrir liggur að hluti nemenda verða fluttir með skólabílum og ganga allt að 200 metra frá Sundhöll að skólanum um umferðargötu þar sem skýrslan bendir á veikleika. Jafnframt er ljóst að aðstæður á svæðinu eru þröngar og illa fallnar til aksturs þungra ökutækja. Nauðsynlegt er að tryggja örugga og raunhæfa aðkomu að skólanum áður en tillagan verður samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð , þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.

Landnúmer: 102543 → skrá.is
Hnitnúmer: 10081688
Deiliskipulag
Skólavörðuholt
Samþykkt 25.06.1996 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag