Samþykkt.
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður markmið tillögunnar um að draga úr notkun plöntuvarnarefna og illgresiseyða, enda mikilvægt að beita slíkum efnum af varfærni og aðeins þegar nauðsyn krefur. Jafnframt er ástæða til að gæta að því að fyrirhugað verklag leiði ekki til óþarfa skrifræðis og flækjustigs í rekstri. Mikilvægt er að treysta faglegu mati sérfræðinga á hverjum tíma og tryggja að ákvarðanir séu bæði skilvirkar og byggðar á bestu þekkingu.