Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Annað
Fyrirspurn
Lagðar fram verklagsreglur um notkun plöntuvarnarefna og illgresiseyða skv. tillögu umhverfis- og skipulagsráðs á fundi ráðsins 15. apríl 2026.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Fulltrúar meirihluta í umhverfis- og skipulagsráði telja ekki forsvaranlegt að notkun skordýraeiturs og illgresiseyðis viðgangist í nærumhverfi íbúa þegar fyrir liggja raunhæfir og öruggari valkostir. Slík efni geta haft skaðleg áhrif á heilsu fólks og valdið raski á viðkvæmum vistkerfum, þar á meðal skordýralífi sem er undirstaða líffræðilegrar fjölbreytni. Með ákvörðun um bann, nema í afmörkuðum undantekningartilvikum á grundvelli leyfis sem sækja þarf um, er verið að setja skýr mörk um að heilsu íbúa og vernd náttúrunnar verði ekki fórnað fyrir þægindi eða hefðbundnar aðferðir sem eiga sér ekki lengur réttlætingu. Fulltrúarnir leggja áherslu á að opinberir aðilar beri sérstaka ábyrgð á að sýna fordæmi í umhverfismálum. Með þessari ákvörðun er stigið afdráttarlaust skref í átt að vistvænni starfsháttum og sjálfbærri umhirðu sameiginlegra svæða. Fulltrúarnir líta svo á að þessi stefna endurspegli bæði faglega þekkingu og skýran vilja íbúa um heilnæmt og eiturefnaminna umhverfi.