Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1066
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis þannig að deiliskipulagsmörk verði samræmd við ný deiliskipulagsmörk fyrir Sæbrautarstokk. Lóð Steinahlíðar er felld út úr deiliskipulagi Vogahverfis og færð yfir í nýtt deiliskipulag fyrir Sæbrautarstokk, samkvæmt uppdrætti Arkís arkitekta, dags. 14. apríl 2026. Einnig er lögð fram umferðartalning VSB verkfræðistofu vegna Suðurlandsbrautar, Langholtsvegar og Steinahlíðar, dags. 6. mars 2026. Tillagan er í auglýsingarferli.
Svar

Samþykkt að framlengja frest til að senda inn athugasemdir til 8. júlí 2026.