Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 377
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis þannig að deiliskipulagsmörk verði samræmd við ný deiliskipulagsmörk fyrir Sæbrautarstokk. Lóð Steinahlíðar er felld út úr deiliskipulagi Vogahverfis og færð yfir í nýtt deiliskipulag fyrir Sæbrautarstokk, samkvæmt uppdrætti Arkís arkitekta, dags. 14. apríl 2026. Einnig er lögð fram umferðartalning VSB verkfræðistofu vegna Suðurlandsbrautar, Langholtsvegar og Steinahlíðar, dags. 6. mars 2026.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Gleðiefni að sjá framkvæmd Sæbrautarstokks nálgast. Með stokki munu lífsgæði íbúa í aðliggjandi hverfum batna mjög, með bættu öryggi, lækkun hávaða, minni mengun. Sömuleiðis bætist við líflegur garður sem tengir Voga og Vogabyggð, með hjóla og göngustígum og aðstöðu til þess að njóta útiveru.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins tekur undir mikilvægi Sæbrautarstokks sem lykilverkefnis í samgöngum Reykjavíkur. Framkvæmdin er forsenda fyrir bætt umferðarflæði, aukinni afkastagetu samgangna og tengingu við stærri innviði, þar á meðal fyrirhugaða Sundabraut eða Sundagöng. Mikilvægt er að undirbúningur og framkvæmd gangi hratt og vel fyrir sig. Tillögur að nýju deiliskipulagi fyrir Sæbrautarstokk og breytingum á deiliskipulagi Vogabyggðar 2 og Vogahverfis eru nauðsynleg aðlögun skipulags að framkvæmdinni. Á sama tíma er ljóst að um er að ræða fyrri áfanga þar sem heildarmynd uppbyggingar og endanleg útfærsla liggur ekki fyrir. Deiliskipulagið byggir að verulegu leyti á forhönnun og lykilforsendur, svo sem umferðargreiningar og áhrif á nærumhverfi, eru enn óljósar. Þá fela breytingarnar í sér heimildir til niðurrifs og tímabundið rask sem mikilvægt er að rökstyðja vel og meta í heildarsamhengi. Sérstaka áherslu þarf að leggja á að greiða fyrir umferð á framkvæmdatíma þannig að áhrif á íbúa, atvinnulíf og aðra vegfarendur verði sem minnst. Að þessu virtu samþykkir fulltrúinn að tillögurnar verði auglýstar til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila.