Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 21. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605010, dags. 20. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík, synjun frá 21. apríl 2026 í máli um kröfu kærenda um að smáhýsi (sánaklefi) á nágrannalóð að Vogalandi 7 á lóðarmörkum Vogalands 7 og Vogalands 9, Reykjavík verði fjarlægt og ákvörðun byggingarfulltrúans um að aðhafast ekki frekar vegna staðsetningar smáhýsisins. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. júní 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 24. ágúst 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. apríl 2026 um að synja erindi um að smáhýsi á lóð Vogalands 7 verði fjarlægt og að aðhafast ekki frekar vegna staðsetningar þess.