Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. mars 2026 ásamt kæru nr. UUA2603003, dags. 6. mars 2026, þar sem kærður er óhæfilegur dráttur á að Reykjavíkurborg komi með niðurstöðu og afgreiðslu máls vegna grenndarkynningar á Laugarásvegi 63. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 10. mars 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 28. apríl 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að leggja fyrir byggingarfulltrúa Reykjavíkur að taka byggingarleyfisumsókn vegna framkvæmda að Laugarásvegi 63 til afgreiðslu án frekari tafa.