Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði að undirbúa fyrirkomulag öryggisúttektar íbúabyggðar í nágrenni og í kringum Reykjavíkurflugvöll. Úttektin skal gerð af óháðum sérfræðingum á sviði flugrekstrar s.s. alþjóðlegra flugmálastofnana eða fyrirtækja sem sérhæfa sig í þess háttar verkefnum eins og t.d. NAC (Netherlands Aerospace Centre) og fleiri. Meta skal atriði eins og hávaða, loftmengun, jarðmengun, líkur á slysum og óhöppum og gera samanburð við aðra staði þar sem íbúabyggð og flugvöllur eru í miklu nábýli eins og í Reykjavík. Athugunin skal fyrst og fremst snúast um öryggi íbúa og íbúabyggðar með tilliti til ofangreindra þátta og annars sem kann að koma upp í úttekt eins og þessari.