Sótt er um leyfi til að fækka og breyta staðsetningu bílastæða, fjölga eignum með því að
breyta öllu innra skipulagi og innrétta 6 sjálfstæð atvinnurými, breyta glugga- og
hurðarsetningum, bæta við svölum og svalahurðum á báðar hliðar 2. hæðar, koma fyrir
þremur iðnaðarhurðum á norðurhlið 1. hæðar, og klæða að utan með sléttri álklæðningu
iðnaðarhús á lóð nr. 3 við Hyrjarhöfða.
Erindi fylgir greinargerð Örugg verkfræðistofu um brunavarnir útg. V01 dags. 10. febrúar
2026 og yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum. Einnig er lögð fram umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2026.