Í iðnaðarbyggingu á lóð nr. 3 við Hyrjarhöfða er sótt um leyfi til að fækka og breyta
staðsetningu bílastæða, fjölga eignum og innrétta 6 sjálfstæð atvinnurými, breyta glugga-
og hurðarsetningum, bæta við svölum og svalahurðum á báðar hliðar 2. hæðar, koma fyrir
þremur iðnaðarhurðum á norðurhlið 1. hæðar, og klæða að utan með sléttri álklæðningu
iðnaðarhús á lóð nr. 3 við Hyrjarhöfða.
Erindi fylgir greinargerð Örugg verkfræðistofu um brunavarnir útg. V01 dags. 10. febrúar
2026 og yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum. Einnig er lögð fram umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 16. júni 2026.