Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602015, dags. 6. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 13.8. 2025, að veita byggingarheimild fyrir breytingu á notkun bílskúranna og útliti þeirra að Hjarðarhaga 13. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. mars 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 3. júní 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. október 2024 um að samþykkja byggingarheimild fyrir breyttri notkun og útliti bílskúrs á lóð fjölbýlishúss nr. 13 við Hjarðarhaga.