Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 380
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. maí 2026 ásamt kæru nr. UUA2605009, dags. 20. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík, dagsett 5. maí 2026, þ.s. kærendum er gert að fjarlægja girðingu og smáhýsi af lóðinni Nýlendugötu 32. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 29. maí 2026. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 5. maí 2026 um að fjarlægja skuli mannvirki sem standi utan lóðamarka Nýlendugötu 32 og á borgarlandi í óleyfi.